AK-Gler
„Við erum með vöru sem beri höfuð og herðar yfir þá sem eru í þessum bransa í dag og við getum hæglega sýnt fram á það,“ segir Þór Marshall, framkvæmdastjóri AK-Glers, en það er nýtt og spennandi fyrirtæki sem stofnað var síðsumars í fyrra og sérhæfir sig í svalalokunum og álhandriðum. Þór segir að fyrirtækið sé með hágæða svalakerfi sem stenst fyllilega íslenskt veðurfar og kröfur.
„Svalakerfið er einstaklega vel hannað og er sterkt á allan hátt. Einnig erum við með innflutning á hertu gleri, álhandriðum og krosslímdum timbureiningum til húsbygginga og ýmislegt fleira,“ segir Þór.
„AK glerbrautarkerfið veitir þann ómetanlega munað að geta notið sólarinnar hvenær ársins sem er. Það verndar fólk líka fyrir slæmu veðri og svo er alltaf sá möguleiki fyrir hendi að opna AK-glerið að vild – þegar veður leyfir. AK glerbrautarkerfið bætir á áhrifamikinn hátt ytra útlit heimilisins með stílhreinum hætti og verndar svalirnar fyrir óhreinindum og steypuskemmdum á sama tíma, svo fá eitt sé nefnt. Þú munt svo sannarlega njóta þess að horfa út af svölunum með flott útsýni á meðan þú færð þér morgunkaffið eða tebolla í eðlilegum stofuhita allt árið um kring,“ segir Þór.
Við hjá AK-Gler leggjum metnað okkar í að veita faglega þjónustu og bjóða upp hágæða vörur, frá traustum framleiðendum og á góðu verði,“ segir Þór að lokum. Einnig minnir hann á að allar nánari upplýsingar er að finna á heimasíðunni www.akgler.is og á www.facebook.com/akgler.
Ak-Gler ehf
Hjallahrauni 9, 220 Hafnarfirði l Sími: 564-0202
Heimasíða
AK-Gler á Facebook