Orðið á götunni er að Liv Bergþórsdóttir, forstjóri Nova, hljóti að vera orðin ein áhrifamesta manneskjan í íslensku viðskiptalífi. Árið 2016 hefur verið henni einkar farsælt, enda hefur tímaritið Frjáls verslun útnefnt hana mann ársins í íslensku atvinnulífi.
Ekki aðeins getur Liv státað af góðum rekstri símafélagsins Nova, sem selt var á sextán milljarða króna á árinu, heldur er hún líka stjórnarformaður WOW sem hefur gengið vonum framar á árinu og skilaði forstjóranum og frumkvöðlinum Skúla Mogensen nafnbótinni Viðskiptamaður ársins hjá Fréttablaðinu.
Að vera forstjóri símafélagsins Nova og stjórnarformaður WOW er því ansi magnað og er væntanlega leitun að öðrum eins áhrifum og Liv hefur í íslensku viðskiptalífi nú um stundir.