Orðið á götunni er að fylgismenn Flokks fólksins séu í unnvörpum að færa sig yfir til Miðflokks Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar. Miðað við stöðuna á könnunum ættu Vinstri græn og Sjálfstæðismenn að vera ánægð með að vera tveir stórir turnar sem koma til greina sem kjölfesta í næstu ríkisstjórn, það er a.m.k. betra en að þurfa að taka þátt í botnslagnum með öllum hinum.
Fylgi Ingu Sæland er byrjað að skreppa saman á sama tíma og Miðflokkurinn bætir við sig fylgi. Orðið á götunni er að Flokkur fólksins eigi eftir að skreppa enn meira saman fram að kosningum vegna titrings innan flokksins. Á morgun mun svo Miðflokkurinn loksins birta stefnuskrá og mun þá að öllum líkindum ná að tæla til sín marga fylgjendur Ingu Sæland.
Slíkt fylgisrán er lýsandi fyrir stöðu íslenskra stjórnmála í dag. Fólk sem vill bætt kjör fyrir öryrkja og aldraða fer frekar yfir til Miðflokksins en yfir til Vinstri grænna og Samfylkingarinnar. Þó svo að þetta geti allt talist félagslegir réttlætisriddarar þá tókst ríkisstjórn Jóhönnu og Steingríms að binda svo um hnútana að þeir sem verst komu út úr hruninu munu aldrei geta hugsað sér að kjósa hinu hefðbundnu vinstri flokka. Óbeit margra á ESB og aðgerðum vinstristjórnarinnar varð meira að segja til þess að stærsti flokkurinn í kosningunum 2009 nánast hvarf árið 2016.
Þessi undarlega staða hefur gert það að verkum að ein yfirlýsing frá Sigmundi Davíð um að tækla bankana verður að fylgisráni um hábjartan dag.