Orðið á götunni er að ráðherrakapall Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Vinstri grænna sé um það bil að ganga upp. Miðað við nýjustu upplýsingar fær Katrín Jakobsdóttir forsætisráðuneytið og Bjarni Benediktsson fjármálaráðuneytið. Sjálfstæðisflokkurinn mun þurfa að losa sig við einn ráðherra til að koma Vinstri grænum og Framsóknarflokknum fyrir, mun því annað hvort Kristján Þór Júlíusson eða Jón Gunnarsson þurfa að víkja. Páll Magnússon, Brynjar Níelsson og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir þurfa einnig að kyngja þeim erfiða bita að þurfa að bíða lengur eftir ráðherraembætti. Birgir Ármannsson sömuleiðis.
Líklegast er að Guðlaugur Þór Þórðarson haldi utanríkisráðuneytinu, Sigríður Andersen dómsmálaráðuneytinu og Þórdís K.R. Gylfadóttir iðnaðar- og ferðamálaráðuneytinu. Líklegast þykir að Kristján Þór verði samgönguráðherra.
Sigurður Ingi Jóhannsson fer þá ýmist aftur í sjávarútvegsráðuneytið nema hann verði landbúnaðarráðherra. Lilja Alfreðsdóttir verður þá menntamálaráðherra. Þá er spurningin hver þriðji Framsóknarmaðurinn verður ráðherra, hvort það verði Willum Þór Þórsson, Þórunn Egilsdóttir eða þá Ásmundur Einar Daðason. Ef marka má samsæriskenningar Miðflokksmanna þá yrðu jól alla daga í Skagafirði ef Ásmundur Einar fær landbúnaðarráðuneytið.
Líklegt er að Ari Trausti Guðmundsson oddviti VG í Suðurkjördæmi verði ráðherra, þá líklegast umhverfisráðherra nema Svandís Svavarsdóttir fari aftur þangað. Eftir situr þá spurningin, hverjum verður fórnað á altari heilbrigðismálanna? Verður það Svandís, verður það Ari Trausti, verður það Lilja Rafney eða verður það villikötturinn Rósa Björk?