Orðið á götunni er að Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR og Þórarinn Ævarsson, framkvæmdarstjóri Ikea, séu að skoða fleti á mögulegu samstarfi um byggingu leiguhúsnæðis, sem myndi sameina áhugamál þeirra beggja um ódýrt leiguhúsnæði til handa alþýðu landsins. Ragnar Þór hefur talað gegn græðgisvæðingu húsnæðismarkaðarins og vill í krafti VR geta boðið upp á íbúðir undir markaðsvirði. Ikea stefnir að byggingu 36 íbúða blokkar við Urriðaholt í Garðabæ handa starfsfólki sínu, en Þórarinn hefur viðurkennt eftir nánari skoðun að hagkvæmnin sé ekki eins mikil og hann var að vonast eftir, en haldið verði áfram með verkefnið engu að síður. Innkoma Ragnars Þórs gæti gert gæfumuninn, en sjóðir VR ku vera nógu digrir til þess að fara af stað með slíkt verkefni og sameinaðir gætu þessir kumpánar boðið félögum á borð við GAMMA birginn, ekki síst ef satt reynist að fjársterkur huldumaður standi þeim félögum að baki.