Orðið á götunni er að aldrei sé jafn miklvægt og rétt fyrir kosningar að sýna pólitísk klókindi. Kusk á hvítflibbann er einfaldlega ekki í boði. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri virðist hafa gleymt þessum vísdómi þegar hann vísaði Eyþóri Arnalds á dyr á fundi í Höfða með forystumönnum í borginni með þingmönnum. Segja má að Dagur hafi gengið í ákveðna gildru en vissulega var hann í fullum rétti að gera athugasemd við viðveru Eyþórs, sem getur vart talist framámaður í borginni á meðan hann hefur ekki náð kjöri. Skynsamlegra, út frá pólitísku sjónarhorni, hefði hins vegar verið að láta atvikið átölulaust.
Annars birtir Viðskiptablaðið athyglisvert viðtal við Eyþór, sem hafði nokkuð stór orð fyrir prófkjör Sjálfstæðisflokksins að það færi ekki saman að vera í stjórnum stórfyrirtækja og í borgarstjórn. Það er áreiðanlega satt og rétt. Í umræddu viðtali dregur Eyþór hins vegar örlítið í land með fyrri fullyrðingar og segir að það komi vel til greina að hann segi sig úr stjórn Árvakurs, útgáfufélags Morgunblaðsins. Í síðasta mánuði sagði hann afdráttarlaust að hann teldi það rétt að losa sig út úr fjölmiðlarekstri ef hann yrði kjörinn borgarfulltrúi.
Sá tími er auðvitað ekki kominn en Eyþór bendir á að hann hafi þegar sagt sig úr stjórnum iðnfyrirtækja. Kröfur á hann séu undarlegar í ljósi þess að sveitarstjórnarmenn hafi verið í alls konar rekstri og þingmenn hafa átt í fjölmiðlum og eigi jafnvel enn.
Orðið á götunni er að Eyþór hafi nokkuð til síns máls. Þingmenn og sveitastjórnarmenn séu oftar en ekki nátengdir fyrirtækjum, auk þess sem a.m.k. tveir þingmenn eru eða hafa verið skráðir í eigendahópi fjölmiðla, Ágúst Ólafur Ágústsson þingmaður Samfylkingar er skráður fyrir eignarhlut í Kjarnanum og Smári McCarthy þingmaður Pítata var alla vega til skamms tíma skráður fyrir hlut í Stundinni.
Lítið hefur verið um hávær mótmæli eða hneykslan vegna þessa.