fbpx
Miðvikudagur 27.nóvember 2024
Eyjan

Engir kostir við útgöngu Breta, en Norðmenn vilja vera nálægt samningaborðinu

Egill Helgason
Miðvikudaginn 15. mars 2017 10:05

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Aðalatriði er að það er mjög erfitt að finna einhvern sem hagnast á þessu,“ segir Frank Bakke-Jensen, ráðherra Evrópumála í norsku ríkisstjórninni í viðtali sem birtist á vef Bloomberg.

„Ég sé enga kosti við það að Bretland fari úr Evrópusambandinu,“ segir Bakke-Jensen.

Í greininni segir að Norðmenn hafi fengið vilyrði, meðal annars frá Michel Barnier, aðalsamningamanni ESB, um að tekið verði tillit til þarfa EFTA þjóðanna í samningaviðræðunum um útgöngu Breta. Við útgönguna munu Bretar líka ganga út úr EES samkomulaginu. Fyrir Noreg eru það erfið tíðindi, því 20 prósent af utanríkisverslun Norðmanna eru við Bretland.

Samkvæmt Bakke-Jensen eru Norðmenn nú að skoða gamla samninga við Bretland til að athuga hvort þar sé eitthvað sem geti ákvarðað framtíðarsamskipti þjóðanna. Þetta er býsna flókið verkefni. En um leið sé mikilvægt að halda í EES samninginn.

Bloomberg segir að talsverð andstaða sé við EES samninginn í Noregi. En bæði Hægri flokkurinn, sem Bakke-Jensen tilheyrir, og Verkamannaflokkurinn sem eru í stjórnarandstöðu styðja hann. Bakke-Jensen segir að þeir sem eru á móti EES hafi ekki sett fram neinn raunverulegan valkost.

„Þetta er það sama og með Boris Johnson, Wilders og allt þetta fólk. Það býður ekki upp á neitt raunverulegt val. Það er verkefni stjórnmálanna að greina það sem við höfum núna og spyrja hvað gæti komið í staðinn.“

 

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Gaf Díegó í jólagjöf

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Oddvitinn búinn að fá nóg af tali um útlendingaandúð Íslendinga – „Jæja góði“

Oddvitinn búinn að fá nóg af tali um útlendingaandúð Íslendinga – „Jæja góði“
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Grein 5 um ESB/Evrópu: Það þarf sterka Evrópu til að tryggja öryggi og velferðar barnanna okkar

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Grein 5 um ESB/Evrópu: Það þarf sterka Evrópu til að tryggja öryggi og velferðar barnanna okkar
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Stefna á frekari sókn á erlendum mörkuðum

Stefna á frekari sókn á erlendum mörkuðum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Atlaga Stefáns Einars að Þórði Snæ hjálpar Samfylkingu – tryggir jafnvel kjör fyrrum ritstjóra Fréttablaðsins

Orðið á götunni: Atlaga Stefáns Einars að Þórði Snæ hjálpar Samfylkingu – tryggir jafnvel kjör fyrrum ritstjóra Fréttablaðsins