Tilnefningar til Edduverðlauna voru kynntar í dag. Það er svona upp og ofan eins og gengur og sitt sýnist hverjum. Pínu erfitt að verðlauna fólk á hverju ári í þessum örsmáa kvikmynda- og sjónvarpsbransa sem hér er.
En Íslendingar eignuðust á síðasta ári fyrstu alþjóðlegu sjónvarpsstjörnuna. Þeim hefur ekki verið til að dreifa hingað til.
Þetta er hinn frábæri knattleikjalýsandi Guðmundur Benediktsson. Efni með honum var spilað í sjónvarpi út um alla heimsbyggðina.
En hann er ekki tilnefndur sem sjónvarpsmaður ársins. Það er eiginlega alveg óskiljanlegt. Í hvaða heimi lifa þeir sem yfirsést hann?