Politiken í Kaupmannahöfn í dag með stóra grein um fyrirhugaða lokun byggingar háskólans við Njalsgade þar sem er íslensk og dönsk handrit eru varðveitt og rannsökuð.
Blaðið talar enga tæpitungu – segir að heimsmenningararfi á Amager sé ógnað. Þarna er til húsa Den Arnamagnæanske Samling sem heitir í höfuðið á Árna Magnússyni handritasafnara – á íslensku hefur þetta löngum verið kallað Árnasafn.