Gunnar Þórðarson tónlistarmaður ætlar í framboð fyrir þingkosningarnar í haust. Hann verður í framboði fyrir Vinstri græn, líklega í 8. sæti í Suðurkjördæmi.
Gunnar hefur ekki haft mikil afskipti af pólitík, en hefur þó vakið athygli fyrir nokkrar pólitískar yfirlýsingar og þátttöku í mótmælum hin síðari ár. Menn hafa þá lagt við hlustir, enda áhrifamikið þegar svo vinsæll og virtur listamaður tekur afstöðu.
Sjálfur segir hann:
Ég er 71 árs og hef engu að tapa. Ég hef yfirleitt kosið VG síðan sá flokkur varð til.