Hér er fyrsti þáttur Steinsteypualdarinnar sem sýndur var á RÚV í gærkvöldi. Þessi þáttur fjallaði um Reykjavíkurbrunann 1915 og afleiðingar hans. Þá hófst tími svokallaðrar steinsteypuklassíkur í Reykjavík.
Smellið hér og sjáið þáttinn á vef Rúv.
Þáttur númer tvö er sýndur næsta fimmtudag, hann fjallar um leit að byggingastíl sem myndi hæfa hinu nýfrjálsa Íslandi. Þar voru fremstir í flokki arkitektinn Guðjón Samúelsson og stjórnmálamaðurinn Jónas frá Hriflu. Frá þessum tíma eru opinberar byggingar og stórhýsi eftir Guðjón, en líka steinsteypt burstahús í sveitum.
En á sama tíma var módernisminn farinn að láta á sér kræla og arkitektinn Sigurður Guðmundsson teiknaði nútímalegt einbýlishús fyrir Ólaf Thors í Garðastræti.