Bónusgreiðslur til örfárra starfsmanna hins fallna Kaupþings vekja undrun, gremju og spurn. Ásgeir Haraldsson, yfirlæknir á Barnaspítala Hringsins, skrifar á Facebook:
ALLIR starfsmenn Barnaspítala Hringsins (rúmlega 200, 164 stöðugildi) hafa sameiginlega í laun á ári (án launatengdra gjalda) um 1,6 milljarða. NOKKRIR lykilstarfsmenn skilanefndar Kaupþings þurfa 1,5 milljarða í bónusgreiðslur – enda bera þeir svo mikla ábyrgð og starfið svo krefjandi.