Það er ótrúlegt að lesa í viðtali við Donald Trump, forsetaefni Repúblikana, að Bandaríki undir hans stjórn myndu ekki endilega standa við skuldbindingar Atlantshafsbandalagsins.
Í viðtalinu sem birtist í New York Times sagði Trump að hann myndi ekki endilega verja bandalagsþjóðir Bandaríkjanna í Nató ef á þær væri ráðist. Samtalið snerist mikið um Eystrasaltsríkin, en Lettland, Litháen og Eistland upplifa mikla ógn frá Rússlandi Pútíns – og ekki furða. Öll þessi ríki hafa leitað skjóls í Nató (og líka ESB).
Þetta er sjálft grundvallaratriðið í Atlantshafsbandalaginu, árás á eitt ríki er árás á þau öll. Á þessu hefur öryggisstefna vestrænna þjóða byggst frá því snemma í Kalda stríðinu.
Trump sagði í viðtalinu að ríki sem ekki borgi reikningana sína njóti ekki endilega verndar. Og ennfremur:
Ef við fáum ekki til baka eitthvað af kostnaðinum við að vernda þessar þjóðir sem búa yfir miklum auði, þá væri ég algjörlega tilbúinn að segja við þær – til hamingju, þið skulið verja ykkur sjálfar.
Við gætum semsagt staðið frammi fyrir tímum þar sem Nató og ESB – alþjóðasamtök sem hafa náð að tryggja frið í Evrópu í 70 ár – eru að liðast í sundur. Mörgum gæti hugnast það – til dæmis Pútín. Trump sendir þau skilaboð að Bandaríkjunum sé kannski engin alvara með verunni í Atlantshafsbandalaginu. Zack Beauchamp segir í grein á vefnum Vox að þetta sé það hættulegasta, heimskulegasta og ábyrgðarlausasta sem hafi komið frá Trump – og auki líkurnar á kjarnorkustyrjöld.
En þetta er maðurinn sem Repúblikanaflokkurinn, flokkur Eisenhowers og Reagans, hefur valið til að setja fingurinn á kjarnorkuhnappinn.
Það hættulegasta, heimskulegasta og ábyrgðarlausasta sem hefur komið frá Trump?