Brotthvarf Vigdísar Hauksdóttur af þingi sætir nokkrum tíðindum. Hún hefur verið mjög valdamikill þingmaður. Vigdís hefur ekki komist í ríkisstjórn, við stjórnarmyndunina 2013 var sagt að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, vildi hana ekki þangað inn en í staðinn fékk hún formennsku í fjárlaganefnd, það er í raun áhrifamesta staðan sem þingmanni getur hlotnast og að mörgu leyti áhrifameiri en minniháttar ráðuneyti.
Í fjárlaganefndinni gerði hún bandalag við varaformanninn, Guðlaug Þór Þórðarsson, og þau hafa verið eins og síamstvíburar í störfum hennar, hafa meira að segja getað kveðið ráðherra í kútinn.
Eitt sinn var sagt að Framsóknarflokkurinn væri opinn í báða enda, hann væri ýmist til hægri og vinstri – en þó er þess að gæta að kveðið var á um það í flokkssamþykktum að hann fylgdi félagshyggju. Vigdís hefur hins vegar verið alveg eindregin í sinni hægri stefnu og ekkert skammast sín fyrir það. Sumt hefur jafnvel minnt á framgöngu hægri pópúlista sunnar í löndum. Pólitískur veruleiki hennar er býsna langt frá því sem var í „gamla“ Framsóknarflokknum.
Vigdís hefur í raun verið háværasti og mest áberandi talsmaður flokksins síðustu árin, hún er mjög yfirlýsingaglöð og alveg laus við að vera varkár eða dipló – sem sæmir kannski ekki alltaf formanni fjárlaganefnda. Það er ekki hægt að segja að hún sé sérlega nákvæm, ræða hennar er býsna endurtekningasöm, hún hefur ekki sérlega gott vald á íslensku, en samt hefur henni hefur sífellt tekist að rata í fyrirsagnir og fréttauppslætti. Í raun elska fjölmiðlarnir hana. Þetta hefur farið í taugarnar á mörgum hófsamari Framsóknarmönnum, þeim sem vilja fremur frið en átök, en á vinstri væng ríkir algjört óþol gagnvart Vigdísi. Margir eru áreiðanlega fegnir að sjá á bak henni.
Það hefur líka vakið athygli að þótt Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hafi ekki viljað hleypa Vigdísi í ríkisstjórn, þá virðist honum hafa líkað framganga hennar vel, maður hefur altént ekki orðið var við annað en að hann hafi velþóknun á henni. Á móti hefur Vigdís hefur mært Sigmund í ræðu og riti. Framsóknarflokkurinn á tíma þeirra er kominn í þá stöðu að útilokað er að hann geti unnið með vinstri flokkunum – enda er ekki nokkur leið að sjá að þau Sigmundur og Vigdís vilji það heldur. Annað hvort er flokkurinn í stjórn með Sjálfstæðisflokki – eða ekki.
Nú er Vigdís að hverfa af vettvangi stjórnmálanna og spurning með pólitíska framtíð Sigmundar Davíðs. Flest bendir líka til þess að Framsóknarflokkurinn verði ekki í næstu ríkisstjórn – að minnsta kosti þarf að verða algjör viðsnúningur í fylgismælingum ef svo á að verða. En helstu foringjar flokksins sem eftir eru virka eins og miklu friðsamara fólk sem gæti jafnvel unnið með vinstri vængnum ef svo ber undir – flokkur sem lýtur forystu Sigurðar Inga Jóhannssonar og Eyglóar Harðardóttur er allólíkur flokki Sigmundar Davíðs og Vigdísar.