Ég held ég hafi horft á öll stórmót í fótbolta síðan um aldamótin í Grikklandi. Það er mjög þægilegt, sjónvörp undir berum himni í kvöldkyrrðinni.
Við Grikklandsvinir gleymum því seint þegar Grikkir urðu Evrópumeistarar 2004. Þá voru þeir smælingjarnir, en þessi leikmaður hérna skældi hástöfum eftir að Portúgal tapaði úrslitaleiknum á móti þeim.