Það var frægt á sínum tíma þegar athafnamaðurinn Björgólfur Thor Björgólfsson sagði að peningarnir sínir hefðu farið til money heaven.
En nú er hugsanlega búið að finna þetta himnaríki fyrir peninga. Það er reyndar stundum kallað paradís – sem er annað nafn yfir himnaríki. Skattaparadís.
Og það er svo merkilegt að hugsanlega geta peningar snúið aftur úr þessari himnavist og nýst til að eignast hitt og þetta – til dæmis fyrirtæki.
Svona var frétt á forsíðu Morgunblaðsins í gær.