Þetta sprengir skalann. Loks leigist út húsnæði Sautján við Laugaveg sem hefur staðið autt og yfirgefið í langan tíma.
Þarna verður ofurlundabúð sem setur ný viðmið.
Lundar á 2000 fermetrum. Að sjálfsögðu í boði Icewear.
Þarna verður reyndar útivistarfatnaður líka. Það er raunar svo einkennilegt að þegar maður fer í miðbæinn í Reykjavík eru allir í útivistarfötum, jafnt túristar sem heimamenn.