fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Eyjan

Skyldi fólk elskast í svona húsum?

Egill Helgason
Þriðjudaginn 5. október 2004 00:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kvikmyndasafn Íslands hefur heldur ólánlega staðsetningu í miðbæ Hafnarfjarðar þar sem er aldrei neinn á ferli það ég veit. Um daginn var samt uppselt á sýningu þar á Sigri viljans eftir Leni Riefensthal, mestu nasistamynd allra tíma. Meira að segja þingmenn úr VG sáust á sýningunni. Konan mín átti afmæli þennan dag og ég var að hugsa um að bjóða henni. Svo hætti ég við á síðustu stund, grunaði að kannski vildi hún frekar sjá eitthvað með Tom Hanks og Meg Ryan.

En þarna í gamla Bæjarbíói er haldið uppi ágætri dagskrá á þriðjudögum og laugardögum, minnir dálítið á kvikmyndaklúbbinn gamla þegar Friðrik Þór var með hann. Á morgun verður til dæmis sýnd þar Fiskur undir steini, mynd þeirra Þorsteins Jónssonar og Ólafs Hauks Símonarsonar sem gerði allt vitlaust fyrir þrjátíu árum. Hún hefur að geyma hina óborganlegu senu þar sem skeggjaður og síðhærður Jón Júlíusson stendur fyrir utan einbýlishús í Grindavík og segir: "Skyldi fólk elskast meira í svona húsum?" Landinn bókstaflega ærðist yfir hrokanum í þessum piltum. Blöðin loguðu.

Sama kvöld er líka sýnd Lífsmark, önnur heimildarmynd sem Þorsteinn og Ólafur gerðu um svipað leyti. Sú mynd sýnir íslenska hippamennsku í hnotskurn, kommúnu sem nokkur ungmenni settu á stofn nálægt Hveragerði. Brauðbakstur, kartöflutínslu, djammsession, leðuriðju – allt þetta. Myndin fjallar samt aðallega um lífsgæðakapphlaupið – orð sem maður er því miður næstum hættur að heyra. Hápunktur myndarinnar er þó þegar auglýsingastjóri Skjás eins kemur labbandi í fullum arabaskrúða. Þetta voru gamlir góðir tímar.

Svo hitti ég Thor Vilhjálmsson í Lækjargötunni um daginn. Thor fékk að velja sitt eigið prógram hjá Kvikmyndasafninu í vetur, uppáhaldsmyndirnar sínar. Valdi auðvitað alvöru evrópska kvikmyndaklassík, ekkert drasl. Andrei Rúblev eftir Tarkovskíj, La Notte eftir Antonioni og Nazarín eftir Bunuel. Ég kvartaði undan því að það væri svo langt í Hafnarfjörð, ég kæmist ekki þangað bíllaus maðurinn. Thor sá ekki að það væri neinum vandkvæðum bundið og bauðst umsvifalaust til að ná í mig og flytja mig á sýningarnar…

Sjá sýningarskrá Kvikmyndasafns Íslands

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur