Jón Baldvin Hannibalsson, sendiherra og fyrrverandi utanríkisráðherra, ætlar að vera gestur í Silfri Egils um næstu helgi, sunnudaginn 24. október. Væntanlega mun þar fjölmargt bera á góma, afmæli EES samningsins, forsetakosningar í Bandaríkjunum, alþjóðapólitík – og kannski sú íslenska líka.
Annar maður stórmerkur verður einnig gestur í þættinum. Það er franski blaðamaðurinn Jacques Juillard, einn af ritstjórum tímaritsins Le Nouvel Observateur, frægur dálkahöfundur og höfundur margra bóka um stjórnmál. Juillard kemur hingað eftir langt ferðalag í Bandaríkjunum, ræðir um stjórnmálaástandið þar, núninginn milli Frakka og Bandaríkjamanna á alþjóðavettvangi og kenningar sínar um hvers vegna mikilmenni eiga svo erfitt uppdráttar í stjórnmálum nútímans.
Silfur Egils er í opinni dagskrá á Stöð 2 alla sunnudaga klukkan 12. Einnig er hægt að skoða þáttinn hér á vefnum.