fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Eyjan

Bush í vandræðum?

Egill Helgason
Þriðjudaginn 26. október 2004 00:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er vika til kosninganna í Bandaríkjunum. Flestir virðast gera ráð fyrir því að Bush vinni. Hann hefur forskot í flestum skoðanakönnunum. Þetta er þó ekki víst. Kosningaspeki í Bandaríkjunum segir að sitjandi forseti geti verið í vandræðum ef hann hefur ekki yfir 50 af hundraði í skoðanakönnunum. Bush virðist eiga erfitt með að ná því. Hér má lesa grein úr The Guardian þar sem því er haldið fram að óákveðnir kjósendur hafi tilhneigingu til að sveiflast frekar til mótframbjóðandans.

Einnig er það að athuga að baráttan snýst í raun bara um örfá ríki. Úrslitin eru talin ráðin annars staðar, það má hérumbil fullyrða að atkvæðin þar skipti ekki máli. Ríkin sem "sveiflast" eru Ohio, Flórida, Iowa, Arkansas, Pennsylvanía, Minnesota, Nevada, Oregon, Vestur-Virginía, Nýja-Mexíkó, Nýja-Hampshire og Wisconsin. Í mörgum þessara mikilvægu ríkja virðist Bush ekki vera í sérlega góðri stöðu. Til dæmis er sagt að menn hans séu næstum búnir aðð gefa Ohio upp á bátinn.

— — —

Ég stakk því að vini mínum, ritstjóra dagblaðs, að hann gerði skoðanakönnun meðal þingmannanna sem sitja á Alþingi og spyrði hvern þeir myndu kjósa ef þeir hefðu kosningarétt í Bandaríkjunum. Maður þarf svosem ekki að velta þessu mikið fyrir sér – en það væri gaman að sjá það svart á hvítu. Hvað ætli Bush myndi fá mikið fylgi – 10 prósent, 20 prósent? Hvað hugsa ungu mennirnir í Sjálfstæðisflokknum? Er Kerry kannski Framsóknarmaður? Myndu Vinstri grænir vilja kjósa Nader? Eða eru menn kannski svo varkárir að þeir gefi sig ekki?

Bush er fyrirlitinn og hataður víðast í Evrópu. Maður heyrir fólk segja að það verði fyrir áfalli ef hann vinnur. Það er víst bara í Póllandi sem hann hefur meirihluta – mér er afar hlýtt til Pólverja, en þeir virðast ekki geta fengið nóg af vandræðum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur