Meðal gesta í Silfri Egils á Stöð 2 á sunnudaginn eru Þráinn Bertelsson rithöfundur, Margrét Frímannsdóttir alþingismaður, Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarfulltrúi, Reynir Traustason blaðamaður, Hallur Hallsson fjölmiðlamaður, Svanur Kristjánsson prófessor og Sigfús Bjartmarsson rithöfundur.
Fjölmörg mál mun bera á góma, enda vikan langt í frá viðburðasnauð. Þar má nefna olíumál, stöðu Þórólfs borgarstjóra og R-listans, nýja fjölmiðlanefnd og hræringar á fjölmiðlamarkaði, kosningar í Bandaríkjunum, kannanir um fylgi stjórnmálaflokkanna og ríkisstjórnarinnar – og væntanlega verður sitthvað fleira nefnt eins og ný og umtöluð bók eftir Þráin og ljóðabók með ádeilukveðskap eftir sögumanninn Sigfús.
Þátturinn er í opinni dagskrá á Stöð 2 klukkan 12 á sunnudag, en er svo endursýndur undir miðnættið sama dag. Einnig er hægt að skoða hann hér á veftívíinu.