Meðal gesta í Silfri Egils á Stöð 2 á sunnudaginn eru Árni Magnússon félagsmálaráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, Valgerður Bjarnadóttir, pistlahöfundur á Fréttablaðinu, Stefán Snævarr heimspekingur og Eiríkur Örn Norðdahl rithöfundur.
Fleiri eiga eftir að bætast í þennan hóp þegar líður nær helginni – af nógu er að taka eftir viðburðaríkar vikur bæði innanlands og utan.
Stefán, sem er prófessor í Noregi, mun tala um nýja bók sína Ástarspekt, en þar er meðal annars að finna hárbeitta gagnrýni á frjálshyggjuna. Annars er Stefán með skemmtilegustu mönnum – og býsna fullyrðingasamur.
Eiríkur kemur í þáttinn með fyrstu skáldsögu sína, Hugsjónadrusluna, en annars er hann á ferðalagi með vini sínum tónlistarmanninum Mugison. Mér skilst þeir séu á NASA í kvöld, fimmtudag. Eiríkur er mikilvirkur bloggari og eitt af snéníunum sem standa á bak við félagsskap sem kallar sig Nýhil. Þetta er ungt fólk sem er óbangið við taka afstöðu til stjórnmála, lista, tungumálsins og alls milli himins og jarðar – og finnst yfirleitt betra að hafa hátt en að þegja.
Þátturinn er í opinni dagskrá á Stöð 2 á sunnudag og er svo endurtekinn undir miðnættið sama kvöld. Einnig er hægt að fylgjast með honum hér á veftívíinu.