fbpx
Miðvikudagur 17.júlí 2024
Eyjan

Þorvaldur, Jónas og Pétur

Egill Helgason
Föstudaginn 18. febrúar 2005 00:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Meðal gesta í Silfri Egils á sunnudaginn verða Þorvaldur Gylfason, prófessor í hagfræði, Pétur H. Ármannsson arkitekt, Hjálmar Árnason, Stefán Jón Hafstein, Páll Baldvin Baldvinsson, Eggert Skúlason Heimir Már Pétursson og Friðbjörn Orri Ketilsson frá Frjálshyggjufélaginu.

Meðal þess sem verður tekið til umfjöllunar í þættinum er staðan á húsnæðismarkaði en Hjálmar Árnason hefur sett fram harða gagnrýni á hlut bankanna í hækkuðu húsnæðisverði, salan á Landsímanum með eða án grunnnets, Ríkisútvarpið – afnotagjöld eða ekki, niðurrif gamalla húsa við Laugaveginn og bann við reykingum á veitingahúsum.

Þorvaldur Gylfason kemur í viðtal um stöðu íslensku krónunnar, hinn veika dollara, þenslu og framleiðni og horfur í efnahagsmálum hér óg úti í heimi.

Pétur H. Ármannsson er helsti sérfræðingur þjóðarinnar í sögu byggingalistar – við hann verður rætt um málefni Miðbæjarins og skipulagsmáli vítt og breitt.

Jónas Sen setti fram harða gagnrýni á Íslensku óperuna í grein í Lesbók Morgunblaðsins á laugardag. Hann mun ræða hana og sitthvað fleira úr tónlistarlífinu.

Silfur Egils er í opinni dagskrá á Stöð 2 á sunnudag, hefst klukkan tólf á hádegi. Það er svo endursýnt síðla um kvöldið en einnig er hægt að horfa á það hér í veftívíinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur