fbpx
Fimmtudagur 18.júlí 2024
Eyjan

Jean Paul Sartre í Silfrinu

Egill Helgason
Laugardaginn 7. maí 2005 00:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Silfur Egils á morgun verður fjölbreytt að vanda. Meðal gesta eru Pétur Gunnarsson rithöfundur og Gérard Lemarquis háskólakennari sem munu ræða hinn áhrifamikla franska heimspeking Jean Paul Sartre. Það eru liðin hundrað ár frá fæðingu Sartres og í Frakklandi fer fram mikið endurmat á arfleifð hans. Meðal þess sem hefur verið spurt er hvort Sartre hafði alltaf rangt fyrir sér?

Af öðrum efnum sem tekin verða fyrir í þættinum má nefna kosningar í Frakklandi um stjórnarskrá Evrópusambandsins, sölu Símans, fjölgun öryrkja, framsóknarvika Deiglunnar, hina nýju siðaskrá DV, Blaðið, formannskjörið í Samfylkingunni, samanburð á kosningakerfi í Bretlandi og á Íslandi og lok heimsstyrjaldarinnar síðari – einkum með tilliti til umræðu um glæpi Sovétstjórnarinnar.

Meðal annarra gesta í þættinum verða Guðmundur Ólafsson hagfræðingur, Jón Einarsson lögmaður, Jónína Benediktsdóttir athafnakona, Jakob F. Ásgeirsson rithöfundur, Margrét Sverrisdóttir framkvæmdastjóri Frjálslyndra, Hrafn Jökulsson blaðamaður, Ragnar Arnalds fyrrverandi ráðherra og Þórður Heiðar Þórarinsson deiglupenni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Ragnar Þór segir þingmann Framsóknarflokksins staðfesta spillingu í landbúnaði – „Allt í boði spilltra stjórnmála“

Ragnar Þór segir þingmann Framsóknarflokksins staðfesta spillingu í landbúnaði – „Allt í boði spilltra stjórnmála“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Ríkisútvarpið telst trauðla menningarstofnun

Björn Jón skrifar: Ríkisútvarpið telst trauðla menningarstofnun
Eyjan
Fyrir 1 viku

Rasismi sagður á uppleið í Frakklandi – Spennan magnast fyrir seinni umferð þingkosninganna – Ofbeldisverk framin af bæði vinstri og hægri mönnum

Rasismi sagður á uppleið í Frakklandi – Spennan magnast fyrir seinni umferð þingkosninganna – Ofbeldisverk framin af bæði vinstri og hægri mönnum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Dagfari: Látum ekki koma fram við okkur eins og búfénað – eini ómöguleikinn er þegar þingið hlýðir ekki þjóðinni

Dagfari: Látum ekki koma fram við okkur eins og búfénað – eini ómöguleikinn er þegar þingið hlýðir ekki þjóðinni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hildur hæðist að Sigmundi og upphlaupi hans í gær – „Það má brosa að því þegar formaðurinn baunar“

Hildur hæðist að Sigmundi og upphlaupi hans í gær – „Það má brosa að því þegar formaðurinn baunar“