Vísir.is og Silfur Egils efna til kosningar á þingmanni ársins. Í greinargerð með kosningunni segir:
Notendum Vísis gefst nú kostur á að velja þingmann ársins. Hægt er að velja einn þingmann úr hverjum flokki sem á fulltrúa á Alþingi. Ekki er nauðsynlegt að velja einn þingmann úr hverjum flokki heldur má velja úr einum flokki, tveimur eða fleiri. Einfalt atkvæðamagn ræður svo úrslitum um hver telst þingmaður ársins.
Ennfremur gefst notendum kostur á að tilnefna einstakling sem þeir vildu helst sjá á þingi.
Aðeins er um léttan leik að ræða, engin verðlaun eru í boði.
Kosningu lýkur klukkan 18:00 laugardaginn 21.maí og verða niðurstöður kynntar í Silfri Egils sunnudaginn 22. maí, en það er síðasti þátturinn fyrir sumarfrí.
Þið getið greitt atkvæði með því að smella hér.