fbpx
Fimmtudagur 18.júlí 2024
Eyjan

Borgríkið Ísland

Egill Helgason
Sunnudaginn 30. október 2005 20:58

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ágúst Einarsson hagfræðiprófessor var í viðtali í þættinum hjá mér í dag, umræðuefnið var ný bók eftir hann sem nefnist Rekstrarhagfræði. Í svipmyndum sem birtast í bókinni reifar Ágúst ýmis mál og setur fram skoðanir sem eflaust þykja djarfar sumar hverjar. Í einum kaflanum hvetur hann til dæmis til þess að Íslendingar verði þrjár milljónir sem allra fyrst – segir að við höfum yfir að ráða þeim auðlindum sem eru að verða eftirsóttastar í veröldinni: Landrými, vatni og orku.

Ágúst segir að það sé spurning hvort við getum leyft okkur að sitja ein að þessu ríkidæmi í framtíðinni; á sama tíma og jarðarbúum fer ört fjölgandi og skortur vex. Hann telur að landið hér eigi að geta borið þrjár og alveg upp í tíu milljón íbúa.

— — —

Það hafa orðið miklar breytingar síðan Ísland gat varla brauðfætt nema svona fimmtíu þúsund hræður sem húktu á smáum sveitabýlum. Meðal þess sem Ágúst fjallar um eru hinir miklu búferlaflutningar. Hann segir að Ísland sé að verða réttnefnt borgríki; næstum hvergi í heiminum búi jafnstórt hlutfall íbúa þjóðar í höfuðborginni og svæði í kringum hana. Hann finnur aðeins fimm ríki í veröldinni sem hafa hærra hlutfall, Singapúr, Barein, Kúveit, Bahamaeyjar og Katar.

Samkvæmt Ágústi bjuggu 63 prósent landsmanna á höfuðborgarsvæðinu árið 2003, en 72 prósent ef Akranes, Árborg og Suðurnes eru talin með.

"Landsbyggðin er einfaldlega horfin sé miðað við önnur lönd," segir Ágúst.

— — —

Í mörgum svipmyndanna fjallar Ágúst um breytingar sem hafa orðið á efnahags- og viðskiptalífinu. Frjáls samkeppni er honum hugleikin sem og ýmsar aðferðir til að koma í veg fyrir hana. Ágúst telur greinilega að hér hafi verið alltof linkulega tekið á samráði fyrirtækja í fákeppnisgreinum. Flestir sem stóðu í grænmetis- og olíusamráðinu eru enn á fullu í viðskiptalífinu, eins og Ágúst bendir á. Almenningur borgar yfirleitt brúsann.

Til dæmis um hversu hart er tekið á samráði í nágrannalöndum nefnir Ágúst litla sögu um Lee Iacocca, hinn fræga forstjóra Chrysler í Bandaríkjunum:

"Lee Iacocca og forstjóri General Motors bjuggu ekki langt frá hvor öðrum. Stundum kom fyrir að þeir rákust hvor á annan í nálægum verslunarkjarna og þá sneru þeir báðir við og flýttu sér í burtu því að þeir vildu ekki hittast vegna þess að það gat varðað við lög og verið túlkað sem samráð. Nokkrum árum seinna þegar þeir höfðu báðir látið af störfum hringdi annar í hinn og þeir mæltu sér mót. Báðir sögðust þeir alltaf hafa haft mikinn áhuga á að hitta hinn en núna fyrst gætu þeir látið verða af því. Viðhorf til viðskipta hér er með allt öðrum hætti."

— — —

Ágúst rifjar einnig upp ekki svo fjarlæga tíma þegar náin tengsl voru milli stjórnmálaflokkanna, stórfyrirtækjanna og bankanna. Í því sambandi segir hann sögu sem varpar aldeilis ljósi á hugarfarið:

"Kolkrabbinn og smokkfiskurinn tókust oft á og síðasta stórorustan var háð þegar selja átti Útvegsbankann árið 1987. Þá gerði Smokkfiskurinn tilboð en Kolkrabbinn og tengdir aðilar lögðu þá líka inn tilboð. Samfélagið nötraði, einkum í bakherbergjum fyrirtækja og flokka. Kolkrabbahópurinn gekk undir nafninu 33-menningarnir eða KR-ingar, kenndir við Kristján Ragnarsson, þáverandi formann Landsambands íslenskra útvegsmanna, sem fór fyrir hópnum. Höfundur þessarar bókar var einn 33-menninganna og þetta voru ævintýraleg átök sem enduðu með því að ríkið hætti við að selja bankann og þannig gátu báðar fylkingar unað við sitt úr því að hinn fékk hann ekki."

Fyrst birt: 30. okt. 2005 20:24

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Ragnar Þór harðorður í garð stjórnmálamanna sem reyni að gera PISA að kynjamáli – „Harðsvíruð tilraun til að drepa málinu á dreif“

Ragnar Þór harðorður í garð stjórnmálamanna sem reyni að gera PISA að kynjamáli – „Harðsvíruð tilraun til að drepa málinu á dreif“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Sigrún og Andrea í framkvæmdastjórn Coca-Cola á Íslandi

Sigrún og Andrea í framkvæmdastjórn Coca-Cola á Íslandi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lífskjör: Kaupmáttur á Íslandi mun minni en hjá nágrannaþjóðum – þriðjungi meiri í Færeyjum

Lífskjör: Kaupmáttur á Íslandi mun minni en hjá nágrannaþjóðum – þriðjungi meiri í Færeyjum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Guðlaugur Þór hefur miklar efasemdir um fyrirhugaða þéttingu byggðar í Grafarvogi

Guðlaugur Þór hefur miklar efasemdir um fyrirhugaða þéttingu byggðar í Grafarvogi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Helen skrifar: Uppreisnarhaf íslenskunnar

Helen skrifar: Uppreisnarhaf íslenskunnar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ragnar Þór segir þingmann Framsóknarflokksins staðfesta spillingu í landbúnaði – „Allt í boði spilltra stjórnmála“

Ragnar Þór segir þingmann Framsóknarflokksins staðfesta spillingu í landbúnaði – „Allt í boði spilltra stjórnmála“