Það er búið að boða mikinn blaðamannafund og veislu vegna útkomu Jónsbókar, sögu Jóns Ólafssonar eftir Einar Kárason. Partíið á að vera í Iðu í Lækjargötu á morgun; sagt er að öllum sé boðið sem eru nefndir í bókinni. Varla mæta þeir Davíð, Hannes og co. Jón hefur aldrei þótt sérlega fínn félagsskapur.
En vegna þessa er nokkuð óskiljanlegt að Jón hafi ætlað að vera í viðtali í Kastljósinu í kvöld. Viðtalið var kynnt með pompi og prakt, líkt og meiriháttar skúbb – Jón hefur víst ýmsar ávirðingar á Sjálfstæðisflokkinn sem verður hægt að kætast yfir næstu daga. Gott í gúrkunni sem nú ríkir í fjölmiðlunum. Margt af þessu held ég reyndar að hafi komið fram áður – sumt oftar en einu sinni.
— — —
Svo kemur allt í einu babb í bátinn. Viðtalinu er frestað. Stjórnandi þáttarins birtist, virðist vera í nokkru uppnámi, líkt og maður sem er búinn að vera að tala mikið í gsm-síma – tilkynnir að viðtalið verði sýnt seinna um kvöldið, að loknum tíufréttum.
Margir biðu spenntir eftir þessu – vildu heyra sprengjurnar falla í viðtalinu – en þá kom Bogi Ágústsson og sagði að viðtalið yrði sýnt á morgun. Jebbs. Bíðum þangað til.
Þá er reyndar hætt við að allir hinir fjölmiðlarnir verði búnir að kynna sér efni Jónsbókar og allt sem Jón hefur að segja – nema þá að þeir verði svo fúlir út af Kastljósviðtalinu sem hann fór í og ekki var sýnt að þeir hunsi bæði Jón og útgáfuna.
Því auðvitað eru ekki góðir mannasiðir að boða blaðamannafund en kjafta svo öllu í einn fjölmiðil kvöldið áður.
— — —
Ekki veit ég hvers vegna viðtalið var ekki sýnt. Kannski eru þetta bara tæknilegir örðugleikar. En áhugamenn um samsæriskenningar skemmta sér ábyggilega vel; sjá fyrir sér Davíð með skærin á lofti uppi í Efstaleiti. Eða var það Jón sjálfur sem fékk bakþanka og stoppaði viðtalið?
Þetta verður sjálfsagt skýrt út á morgun. En raunar veit ég ekki hvort er meira halló, að hætta við að sýna viðtalið eða að láta sér detta i hug að rjúfa kvölddagskrá á sjálfu ríkissjónvarpinu vegna viðtals út af ævisögu Jóns Ólafssonar.
— — —
Birti hér aftur grein sem ég skrifaði í DV fyrir einu og hálfu ári og heitir Rökke, ég og Jóhann próki. Þar kemur Jón Ólafsson líka við sögu. Greinina er að finna í blaðagreinunum hér á neðar síðunni.