fbpx
Fimmtudagur 18.júlí 2024
Eyjan

Dýrlingurinn í bænum

Egill Helgason
Föstudaginn 2. desember 2005 21:32

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ég hef verið að gefa einhverja smáfjárhæð á mánuði í Unicef. Eftir hina hallærislegu samkomu sem haldin var með nýríkum Íslendingum í gær er ég ákveðinn í að hætta því. Ég ætla að tvöfalda upphæðina og gefa hana í eitthvað annað, til dæmis þetta hér eða þá þetta.

Á samkomunni borgaði kona 20 milljónir fyrir ómálað málverk eftir Hallgrím Helgason, en annar kjáni greiddi 2,5 milljónir fyrir að fá að lesa veðurfréttir á NFS.

— — —

Hins vegar hefði ég verið alveg til að að hitta Roger Moore – eða bara sjá hann tilsýndar. Það hefði verið nóg. Rakst á Össur og Steingrím J. í bænum í dag, þeir voru á leiðinni í hádegisverð með Moore ásamt utanríkismálanefnd. Þangað var Jónína Bjartmarz líka að skunda. Hún sagði að hún hefði frekar viljað snæða með Sean Connery.

Ekki ég. Roger Moore var fyrsta átrúnaðargoð mitt í sjónvarpi. Þá lék hann Dýrlinginn, Simon Templar. Þetta var eiginlega fyrsta þáttaröðin sem sýnd var í sjónvarpi á Íslandi. Ég var sjö ára. Á þeim árum dreymdi alla stráka á Íslandi um Dýrlingsbíl. En það var ekki til neitt sjónvarp heima hjá mér, svo ég lagði á mig að fara alla leið til frænku minnar á Laufásvegi til að sjá Dýrlinginn.

— — —

Á fyrstu árum sjónvarps var mikill gestagangur á Íslandi. Þeir sem áttu ekki sjónvarp heimsóttu þá sem áttu tæki. Á heimili eins vinar míns kom á hverju kvöldi maður sem kvaðst hafa verið skólabróðir heimilisföðursins. Hann mundi reyndar ekki eftir honum, en manninum var samt hleypt inn.

Svona gekk þetta í nokkur ár. Þá tilkynnti maðurinn, sem hét Hreinn, að öldruð móðir sín hefði fengið sjónvarp. Hann kvaddi um kvöldið og sást aldrei framar.

— — —

Miklu síðar fór ég að nota James Bond myndirnar við svefnleysi. Ég hef tvisvar sofnað yfir Bond í bíó. Ef ég á erfitt með svefn þarf ekki annað en að sýna mér smá Bond og ég dett undireins útaf.

— — —

Það er orðið svo mikið af háskólum í landinu að líklega er nauðsynlegt fyrir Háskóla Íslands að hætta að heita háskóli. Ef hann héti til dæmis Universitas myndu allir bera miklu meiri virðingu fyrir honum. Orðið háskóli er líklega komið hingað úr dönsku og þýðir ekkert endilega "háskóli". Danir nota orðið universitet – líkt og hérumbil allar þjóðir. Höjskole er allt annað.

Þessir háskólar sem verið er að stofna út um alllar koppagrundir eru auðvitað höjskoler, einhvers konar framhald af framhaldsskólunum, hugsaðir til að gera nemendur aðeins gjaldgengari á vinnumarkaðnum. Sumir virðast aðallega vera hugsaðir sem partur af byggðastefnu. En þeir eru ekki "háskólar" með fjölþættum rannsóknum og akademísku andrúmslofti.

— — —

Konan mín sendi mig áðan niður í 10/11 til að kaupa piparkökudeig. Ég leitaði um allt, fann ekki. Svo rann upp fyrir mér að 10/11 er einstæðingabúð. Ég fylltist depurð. Þarna eru hilluraðir eftir hilluraðir af tilbúnum réttum, skyndimat á bökkum, samlokum, snakki og gosi. Ávextir eru sneiddir niður í smábita og settir í plastfilmu. Þetta er búð fyrir fólk sem kemur seint heim úr vinnunni, sest fyrir framan sjónvarpið og borðar af plastbakka. 10/11 er einhver sorglegasti staður í Reykjavík. Það liggur við að maður noti frasann "musteri matarhaturs".

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Svarthöfði skrifar: Gott að vita að stóru málin eru í lagi – lofsverð framsýni utanríkisráðherra

Svarthöfði skrifar: Gott að vita að stóru málin eru í lagi – lofsverð framsýni utanríkisráðherra
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Ragnar Þór harðorður í garð stjórnmálamanna sem reyni að gera PISA að kynjamáli – „Harðsvíruð tilraun til að drepa málinu á dreif“

Ragnar Þór harðorður í garð stjórnmálamanna sem reyni að gera PISA að kynjamáli – „Harðsvíruð tilraun til að drepa málinu á dreif“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Miskunnsamur Samverji lögum samkvæmt

Þorsteinn Pálsson skrifar: Miskunnsamur Samverji lögum samkvæmt
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lífskjör: Kaupmáttur á Íslandi mun minni en hjá nágrannaþjóðum – þriðjungi meiri í Færeyjum

Lífskjör: Kaupmáttur á Íslandi mun minni en hjá nágrannaþjóðum – þriðjungi meiri í Færeyjum