fbpx
Mánudagur 25.nóvember 2024
Eyjan

Þjófar og þjófsnautar

Egill Helgason
Miðvikudaginn 14. desember 2005 21:38

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ef einhver stelur frá mér er hann þjófur. Ef einhver tekur við einhverju sem er stolið frá mér er hann þjófsnautur. Eigur mínar njóta verndar. Þetta er grundvallaratriði. Þess vegna held ég að Hæstiréttur hljóti að dæma öðruvísi í lögbannsmáli Jónínu Benediktsdóttur en Héraðsdómur.

Tjáningarfrelsið þvælist vissulega þarna fyrir, en í meginatriðum getur það ekki verið sett skör ofar eignarréttinum. Ef gögn eru tekin ófrjálsri hendi í því skyni að upplýsa glæpsamlegt athæfi getur hugsanlega gegnt öðru máli. En í tölvupósti Jónínu Benediktsdóttur verður ekki séð að sé neitt að finna sem getur talist glæpur – þarna eru kannski skrítnar hugmyndir um þjóðfélagið – en slíkt varðar ekki við lög.

Hví er ekki rannsakað hvar Fréttablaðið fékk þessi gögn? Ég hef unnið lengi sem blaðamaður, en get með engu móti skrifað undir að við í þessari stétt séum svo mikilvæg að við séum með einhverjum hætti hafin yfir lög. Það er bara bábilja – í versta falli skálkaskjól.

— — —

Ef allir þeir sem heimta nú afsögn Árna Magnússonar, tala um glöp og valdníðslu, hefðu mótmælt brottrekstri Valgerðar Bjarnadóttur á sínum tíma horfði málið dálítið öðruvísi við. Mig er kannski að misminna, en mig rekur varla minni til að neinn hafi talað máli hinnar bottreknu jafnréttisstýru.

Því virkar þessi umræða dálítið hræsnisfull, en kannski er ekki von á öðru frá stjórnarandstöðu sem hrekst um og finnur ekki neitt sem getur orðið henni að vopni.

— — —

Alveg er ég sammála femínistunum sem deila á fegurðarsamkeppnir. Mér finnst þær lágkúrulegar, asnalegar, leiðinlegar. Þegar ég var að alast upp var litið niður á fegurðarsamkeppnir – konur sem tóku þátt í þeim þóttu ekki á vetur setjandi. Fegurðardís ein sem var í mínum bekk vann einhvern slíkan titil; ég held að hann hafi verið henni til tómrar óhamingju innan um gáfnasnobbin í MR. Ég gat fyrst litið hana réttu auga þegar ég hitti hana í Melabúðinni tuttugu árum síðar.

Svo komust fegurðarsamkeppnir aftur í tísku um tíma, en ég held að þær séu það ekki lengur. Þessi samkoma í Kína þar sem Unnur Birna vann titilinn um kvöldið virkaði vægast sagt sjoppuleg. Eða veit einhver lesandi hver var Ungfrú Heimur í fyrra eða hittifyrra?

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Atlaga Stefáns Einars að Þórði Snæ hjálpar Samfylkingu – tryggir jafnvel kjör fyrrum ritstjóra Fréttablaðsins

Orðið á götunni: Atlaga Stefáns Einars að Þórði Snæ hjálpar Samfylkingu – tryggir jafnvel kjör fyrrum ritstjóra Fréttablaðsins
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Steinunn Ólína skrifar: Óheiðarleiki er smitsjúkdómur

Steinunn Ólína skrifar: Óheiðarleiki er smitsjúkdómur
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Ræðum ESB!

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Ræðum ESB!
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Sér íslenskir skattar og yndi stjórnlyndra flokka

Þorsteinn Pálsson skrifar: Sér íslenskir skattar og yndi stjórnlyndra flokka