fbpx
Fimmtudagur 18.júlí 2024
Eyjan

Prófkjör skerpa hugann

Egill Helgason
Miðvikudaginn 8. febrúar 2006 19:59

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Prófkjör mega eiga það að þau skerpa huga stjórnmálamanna, þeir verða voða næmir meðan þau standa yfir. Kjartan Valgarðsson, frambjóðandi hjá Samfylkingunni, hefur fengið mág sinn Hallgrím Helgason til að teikna þessa útfærslu á Klambratúni. Börnin eiga að geta leikið sér meðan foreldrarnir spjalla yfir kaffibolla. Kjartan hefur rétt fyrir sér þegar hann segir að túnið sé skelfing eyðilegt.

Í bók sem heitir Borg og náttúra og kom út árið 2000 skrifaði Trausti Valsson um hin vannýttu grænu svæði í Reykjavík. Hugmynd hans var að tengja þau betur við byggðina með því að byggja meira umhverfis þau, líkti þessu við eins konar tennur sem gengu inn á grænu svæðin – þá yrði staður eins og Klambratún ekki lengur eins og eyðimörk, umkringd umferðarmannvirkjum á alla vegu heldur myndaðist tenging við byggðina í kring.

En fyrst við erum að tala um græn svæði er rétt að minna enn einu sinni á hugmynd Hafns Gunnlaugssonar um flutning Árbæjarsafns niður í Hljómskálagarð. Hrafn var að gefa myndina sína Reykjavík í öðru ljósi út á mynddiski. Í myndrænni útfærslu hans sér maður hvað þetta er gráupplagt. Það vantar bara stjórnmálamenn með vilja og getu.

— — —

Skítt með hver eignar sér frumvarp um dreifiveitur. Það skiptir afar litlu fyrir fólkið í þessu landi hvort málið kemur frá Merði Árnasyni eða einhverjum öðrum. Þetta er mjög brýnt málefni. Dreifiveiturnar eru alveg nýr veruleiki í fjölmiðlum. Í gegnum þær er hægt að ná tangarhaldi á neytendum (því í huga þeirra sem selja þessa þjónustu eru borgararnir fyrst og fremst neytendur).

Þarna eru hægt og bítandi að renna saman sjónvarp, internetþjónusta, sími, auglýsingar, verslun í gegnum þessa miðla, heimsendingar jafnvel – allt sem nöfnum tjáir að nefna. Tækifærin til að stýra neyslunni eru óteljandi. Það er ekki furða að Rupert Murdoch líti framtíð fjölmiðlunar björtum augum og sjái ótal tækifæri, ekki síst í gagnvirkninni.

Því þarf að passa vel upp á fjölbreytnina, að einn eða fáir aðilar aðili sitji ekki að dreifiveitunum og leyfi ekki öðrum að komast að. Þetta er sá veruleiki sem blasir við núna. Því miður komust þessar pælingar ekki að á tíma stóra fjölmiðlamálsins, umræðan þá var náttúrlega svo ómálefnaleg sem mest má verða. En þetta snýst um miklu meira en hver hafi aðgang að enska boltanum.

— — —

Þegar ég var í blaðamannaskóla í París fyrir mörgum var mikið rætt um plagg sem nefndist New Information Order, nýja skipun upplýsingamála í heiminum. Þetta var skýrsla á vegum einhverrar stofnunar Sameinuðu þjóðanna og var mælst til þess að blaðamenn um allan heim tileinkuðu sér þessar hugmyndir.

Mörgum félögum mínum var mjög heitt í hamsi yfir þessu. Þarna var gert ráð fyrir að það sem ætti við í blaðamennsku á Vesturlöndum passaði ekki endilega í Þriðja heiminum. Í umfjöllun um hann þyrfti að sýna sérstaka nærfærni – maður átti að skilja að aðrar mælistikur giltu um blaðamennsku þar.

Þegar maður skoðaði nánar var þetta í rauninni ákall um ritskoðun og dekur við harðstjóra.

— — —

Bílaiðnaðurinn var eitt sinn stolt Bandaríkjanna. Samkvæmt grein í Guardian virðist hann vera svo gott sem dauður, Bandaríkjamenn eru hættir að elska bílana sína. Jeppaakandi Íslendingar eru of fáir til að halda þessu uppi.

— — —

Ögmundur Jónasson er með ágæta umfjöllun um fáránleg laun bankastjóra Landsbankans, spillinguna í kringum einkavæðingu ríkisbankanna og um bráðsnjalla ljósmynd sem fangar algjörlega delluna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Ólafur Stephensen: Samkeppnisyfirvöldum kippt út – eins og dómarinn sé tekinn út af og annað liðið ráði reglunum

Ólafur Stephensen: Samkeppnisyfirvöldum kippt út – eins og dómarinn sé tekinn út af og annað liðið ráði reglunum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Brynjar liggur undir feldi og íhugar vistaskipti – „Orðið flak lýsir best líðan minni núna“

Brynjar liggur undir feldi og íhugar vistaskipti – „Orðið flak lýsir best líðan minni núna“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Rasismi sagður á uppleið í Frakklandi – Spennan magnast fyrir seinni umferð þingkosninganna – Ofbeldisverk framin af bæði vinstri og hægri mönnum

Rasismi sagður á uppleið í Frakklandi – Spennan magnast fyrir seinni umferð þingkosninganna – Ofbeldisverk framin af bæði vinstri og hægri mönnum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Samfélag til að græða á

Sigmundur Ernir skrifar: Samfélag til að græða á