fbpx
Föstudagur 19.júlí 2024
Eyjan

Kjarnorka er góð

Egill Helgason
Mánudaginn 27. mars 2006 22:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ýmsir hafa orðið til þess að vitna í breska vísindamanninn James Lovelock og viðvörunarorð hans í bókinni The Revenge of Gaia. Þar tekur Lovelock mjög djúpt í árinni varðandi hættuna sem stafar af gróðurhúsaáhrifum. Hins vegar hafa hampað hampa síðari hluta röksemdafærslu Lovelocks – þar mælir hann nefnilega með notkun kjarnorku. Á fáum skoðunum ríkir jafn mikil bannelgi í heiminum. Það er nánast almennt álit að kjarnorka sé vond – svona rétt eins og að veiða hvali til dæmis.

Lovelock sýnir fram á það í bók sinni að óttinn við kjarnorku sé algjörlega órökrænn – hann telur raunar að kjarnorka sé eina leiðin til að afstýra hlýnun jarðar. Hana þurfi að stöðva strax ef ekki eigi illa að fara og þar geti ekkert keppt við kjarnorku.

Lovelock tekur dæmi. Annars vegar fjölskyldu sem býr hundrað kílómetrum fyrir neðan hina gríðarlegu Yangtse stíflu í Kína og hins vegar fjölskyldu sem býr hundrað kílómetra undan vindi frá Tsjernóbýl – versta dæmi um verstu tegund af kjarnaorkutækni.

Ef stíflan brestur myndi milljón manna farast, kannski tugir milljóna. Þegar sprenging var í kjarnorkuverinu í Tsjernóbýl og kvíknaði síðan í því, dreifðust geislavirk efni um stóra hluta Úkraínu og nálægra ríkja. Margir virðast halda að tugir þúsunda ef ekki milljónir hafi dáið vegna Tsernóbyl, Lovelock segir að það séu ekki fleiri en sjötíu og fimm.

— — —

Fyrst klúðra menn öllu, svo eru þeir gerðir að sendiherrum. Það hlýtur að vera grín þegar sagt er að þeir ætli að senda Albert Jónsson til Washington.

— — —

Það er sagt að Robert Louis Stevenson hafi skrifað Gulleyjuna fyrir frænda sinn sem bað hann um að skrifa bók þar sem væru engar stelpur. Stevenson stóð við það – það er afskaplega lítið um kvenfólk í þessari frægu ævintýrasögu.

Í gær ætlaði ég að fara lesa fyrir Kára ævintýri úr bók sem kom út fyrir mörgum árum undir heitinu Ævintýri Æskunnar (semsé barnablaðsins). Stakk upp á að við byrjuðum á Þyrnirósu.

Þá harðneitaði drengurinn og sagði:

"Ég vil ekki lesa sögu með stelpu í."

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sakar Reykjavíkurborg um að draga lappirnar varðandi viðbrögð við rafhjólaslysum

Sakar Reykjavíkurborg um að draga lappirnar varðandi viðbrögð við rafhjólaslysum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Áslaug Arna teflir öllu fram og segir Sjálfstæðisflokkinn geta gert margt betur – „Sorglegt að sjá víða að við förum ekki betur með fé“

Áslaug Arna teflir öllu fram og segir Sjálfstæðisflokkinn geta gert margt betur – „Sorglegt að sjá víða að við förum ekki betur með fé“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ólafur Stephensen: Samkeppnisyfirvöldum kippt út – eins og dómarinn sé tekinn út af og annað liðið ráði reglunum

Ólafur Stephensen: Samkeppnisyfirvöldum kippt út – eins og dómarinn sé tekinn út af og annað liðið ráði reglunum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir sigur Kristrúnar og Samfylkingarinnar geta orðið mun stærri en búist er við

Segir sigur Kristrúnar og Samfylkingarinnar geta orðið mun stærri en búist er við
Eyjan
Fyrir 1 viku

Rasismi sagður á uppleið í Frakklandi – Spennan magnast fyrir seinni umferð þingkosninganna – Ofbeldisverk framin af bæði vinstri og hægri mönnum

Rasismi sagður á uppleið í Frakklandi – Spennan magnast fyrir seinni umferð þingkosninganna – Ofbeldisverk framin af bæði vinstri og hægri mönnum