fbpx
Föstudagur 19.júlí 2024
Eyjan

Hollvinir skattgreiðenda – vaxtahækkun – minningargreinar

Egill Helgason
Fimmtudaginn 30. mars 2006 20:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hollvinir skattgreiðenda – minnir þetta ekki helst á gamla góða Mogens Glistrup? Var hann ekki mestur hollvinur skattgreiðenda? En svo eru það bara nokkrir SUS-arar. Nú hefur Sjálfstæðisflokkurinn ekki sýnt sig að vera sérstakur skattalækkanaflokkur nema síður sé (þó reyndar virðist ekki mega segja sannleikann um það) – svo kannski væri hressandi að fá smá glistrupisma til að hressa upp á skattaumræðuna.

Glistrup var líka maður litla fólksins – einhvern veginn finnst manni vera skortur á slíkum stjórnmálamönnum núorðið. Allt sem er að gerast í þinginu þessi misserin ber vott um dapurlega og staðnaða pólitíska atvinnumennsku.

— — —

Maður er með óbragð í munninum yfir vaxtahækkunum dagsins. Hvar á þetta að enda? Öllu draslinu er velt yfir á almenning í þessu landi. Bankarnir og stórfyrirtæki geta haldið áfram að taka lán á úrvalskjörum í útlöndum. Þar sem vextir eru hæstir í heiminum komast þeir ekki í hálfkvisti við það sem er á Íslandi.

11,5 prósenta stýrivextir – er það nokkuð annað en játning á að hér sé allt í rugli? Er hægt að reka hagkerfi með þessum hætti? Hver er að berja?

Skyldi það vera evran?

— — —

Jónas Kristjánsson heldur úti prýðilegri vefsíðu. Hann er sem fyrr einn snjallasti stjórmálaskríbent landsins. En maður er ekki alltaf sammála Jónasi. Um daginn var hann að hneykslast yfir minningargreinunum í Mogganum. Jónas segir að þær séu ónothæfar sem mannlýsingar.

Sem er alveg örugglega rétt. Í minningargreinunum er dregin stór fjöður yfir galla hinna látnu. En það er að sumu leyti þess vegna sem þær eru merkilegar. Greinarnar væru miklu leiðinlegri ef þar væri sagður allur sannleikurinn og engar refjar. Fyrir utan að þá gegndu þær öðrum tilgangi – þjónuðu sannleikskröfu sem við höfum víst fæst gagnvart nýlátnu fólki.

Minningargreinarar eru eins konar vörður sem við reisum yfir dána ættingja og vini hérna megin – fæstir eru svo lítilsvirtir að þeir fái ekki eitthvað um sig í Moggann eftir andlátið – og þær eru líka vegarnesti sem fylgir dánu fólki yfir í eilífðina. Svona og bréf til eilífðarinnar – eða sá siður að setja peninga á augnlok hinna dánu til að greiða ferjumanninum (ég veit reyndar ekki hvort þetta tíðkast nokkurs staðar nema í Hollywoodmyndum.)

Svo segja minningargreinar líka oft meira um höfunda sína en þá sem er skrifað um. Að því leyti eru þær ágætar mannlýsingar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sakar Reykjavíkurborg um að draga lappirnar varðandi viðbrögð við rafhjólaslysum

Sakar Reykjavíkurborg um að draga lappirnar varðandi viðbrögð við rafhjólaslysum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Áslaug Arna teflir öllu fram og segir Sjálfstæðisflokkinn geta gert margt betur – „Sorglegt að sjá víða að við förum ekki betur með fé“

Áslaug Arna teflir öllu fram og segir Sjálfstæðisflokkinn geta gert margt betur – „Sorglegt að sjá víða að við förum ekki betur með fé“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ólafur Stephensen: Samkeppnisyfirvöldum kippt út – eins og dómarinn sé tekinn út af og annað liðið ráði reglunum

Ólafur Stephensen: Samkeppnisyfirvöldum kippt út – eins og dómarinn sé tekinn út af og annað liðið ráði reglunum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir sigur Kristrúnar og Samfylkingarinnar geta orðið mun stærri en búist er við

Segir sigur Kristrúnar og Samfylkingarinnar geta orðið mun stærri en búist er við
Eyjan
Fyrir 1 viku

Rasismi sagður á uppleið í Frakklandi – Spennan magnast fyrir seinni umferð þingkosninganna – Ofbeldisverk framin af bæði vinstri og hægri mönnum

Rasismi sagður á uppleið í Frakklandi – Spennan magnast fyrir seinni umferð þingkosninganna – Ofbeldisverk framin af bæði vinstri og hægri mönnum