fbpx
Föstudagur 19.júlí 2024
Eyjan

Finn Air

Egill Helgason
Laugardaginn 7. október 2006 19:09

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nú eru Framsóknarmenn búnir að eignast Icelandair – þetta gamla óskabarn sem áður hét Flugleiðir og varð til eftir sameiningu Flugfélags Íslands og Loftleiða, félaga sem lék um ævintyraljómi einkaframtaks, athafnamennsku og hetjudáða.

Frumkvöðlarnir yrðu skrítnir á svipinn ef þeir heyrðu þessi tíðindi – og hvað segja Sigurður gamli Helgason og Hörður Sigurgestsson? Til hvers var allt þeirra starf?

Bak við nýjasta plottið er ekki minni maður en Finnur Ingólfsson – sem var næstum orðinn formaður Framsóknarflokksins um daginn. Gárungarnir eru strax farnir að kalla þetta Finn Air.

— — —

Það er alltaf viss öryggistilfinning að fljúga með Icelandair. Starfsfólkið er yfirleitt afar vænt, þótt plássið þrengist stöðugt milli sætanna (eða stækkar maður sjálfur?) og maturinn verði sífellt ómerkilegri – það er í raun enginn munur á því lengur að fljúga með Icelandair eða lágfargjaldaflugfélagi. En öryggistilfinningin er ósvikin.

Það kann hins vegar að breytast með Finn við stýrið.

— — —

Icelandair var ein aðalstoðin í Kolkrabbanum svokölluðum. Alltaf hélt maður að hann yrði eilífur, en svo hvarf hann bara í tímans elg. Þetta er svosem ekki séríslenskt fyrirbæri. Gamla kapítalið gáði ekki að sér og það komu nýjir og ófyrirleitnir menn sem sölsuðu undir sig auðmagnið. Björgólfur gerði eins og Rómverjar í Karþagó í forðum, lagði borgina ekki bara í eyði, heldur lét plægja upp jarðveginn þar sem hún stóð og strá salti í förin.

Og nú er flugið nánast komið undir Sambandið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Jón Sigurður skrifar – Farsælast að vera fullkomlega sannfærður um eigin ranghugmyndir

Jón Sigurður skrifar – Farsælast að vera fullkomlega sannfærður um eigin ranghugmyndir
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Einstaklingshyggjan hefur rænt okkur vitinu

Sigmundur Ernir skrifar: Einstaklingshyggjan hefur rænt okkur vitinu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði