fbpx
Þriðjudagur 26.nóvember 2024
Eyjan

Þorir meðan aðrir þegja

Egill Helgason
Mánudaginn 30. október 2006 21:55

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ég get ekki séð mikið óeðlilegt við að Ekstrablaðið danska fjalli um íslenska kapítalista. Má vera að þetta sé ekkert ofboðslega vandað – en þetta er jú blaðið sem bjó til slagorðið Þorir meðan aðrir þegja. Frekar að þetta afhjúpi ódöngun íslenskra fjölmiðla sem hafa mestanpart látið eiga sig að fjalla um nýja auðvaldið á gagnrýninn hátt. Til dæmis fannst mér ansi forvitnilegt að sjá hringrás fjármagnsins milli Íslands, Danmerkur, Lúxemborgar og Karíbahafsins. Kannski er ekkert ólöglegt við þetta, en það er ekkert tiltakanlega siðlegt heldur.

Nú hefur Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, sem býr í Danmörku, kært Ekstrablaðið fyrir þessa umfjöllun. Allt út af einhverjum stíltilþrifum í texta dönsku blaðamannanna. Vilhjálmur hefur áður gengið fram fyrir skjöldu með furðulegum hætti, til dæmis þegar hann hélt því fram fullum fetum í grein sem birtist í Jerúsalem að gyðingahatur væri vaxandi á Íslandi.

Þetta fann Vihjálmur út með því að leggja andstöðu við framferði Ísraelsmanna í Palestínu að jöfnu við hatur á gyðingum. Sagði hann að í landi þar sem búa svo fáir gyðingar sé viðhorfið til Ísraels líklega besta aðferðin til að "mæla antí-semitisma."

Annars kemur Árni Mathiesen einna verst út úr þessu. Það er náttúrlega rétt hjá ritstjóra Ekstrabladet að það var fáránlegt af íslenska fjármálaráðherranum að tjá sig um greinarflokkinn áður en birting hans hófst.

— — —

Skrítið af Ingibjörgu Sólrúnu að taka það fram sérstaklega að hún sé ekki ánægð vegna lélegs gengis Önnu Kristínar Gunnarsdóttir í prófkjöri Samfylkingar á Norðvesturlandi. Þykir Sólrúnu þá vont að fá Kalla Valla prest aftur á þing? Eftir fjögur ár á þingi fékk Anna Kristín fékk ekki nema 368 atkvæði í efstu sætin. Það ber ekki vott um miklar vinsældir. Hún hefur verið ein af ósýnilegu þingmönnunum sem Pétur Gunnarsson lýsir eftir í pistli.

Eitt sinn sátu miklir höfðingjar úr vestursýslum Norðurlands á þingi. Páll Pétursson, Björn Pálsson, Jón Pálmason, Pálmi Jónsson – en nú stefnir í að Húnvetningar og Skagfirðingar eigi engan þingmann. Þetta hefur verið nokkuð erfitt hjá þeim um nokkurt skeið. Til skamms tíma sat Vilhjálmur Egilsson á þingi fyrir kjördæmið, bjó í Reykjavík – en var eiginlega réttnefndur frjálshyggjumaður í bændagíslingu.

— — —

Úbbs. Halldór Ásgrímsson að verða framkvæmdastjóriráðherranefndarinnar norrænu og á sama tíma leggur Dagens Nyheter, virtasta blað Norðurlandanna, til að Norðurlandaráð verði lagt niður. Ef þetta er ekki aðför þá veit ég ekki hvað.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Grein 5 um ESB/Evrópu: Það þarf sterka Evrópu til að tryggja öryggi og velferðar barnanna okkar

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Grein 5 um ESB/Evrópu: Það þarf sterka Evrópu til að tryggja öryggi og velferðar barnanna okkar
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Orðið á götunni: Mun taktísk kosning ráða úrslitum um forystusætið?

Orðið á götunni: Mun taktísk kosning ráða úrslitum um forystusætið?
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Atlaga Stefáns Einars að Þórði Snæ hjálpar Samfylkingu – tryggir jafnvel kjör fyrrum ritstjóra Fréttablaðsins

Orðið á götunni: Atlaga Stefáns Einars að Þórði Snæ hjálpar Samfylkingu – tryggir jafnvel kjör fyrrum ritstjóra Fréttablaðsins
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Steinunn Ólína skrifar: Óheiðarleiki er smitsjúkdómur

Steinunn Ólína skrifar: Óheiðarleiki er smitsjúkdómur
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson leiðréttir Össur: Nei, Össur, það er ekki Viðreisn heldur Samfylkingin sem hallar sér til hægri

Þorsteinn Pálsson leiðréttir Össur: Nei, Össur, það er ekki Viðreisn heldur Samfylkingin sem hallar sér til hægri
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Segir fund með Grindvíkingum sláandi – „Það er orðið svo þreytt að segja að hugur manns sé hjá þeim“

Segir fund með Grindvíkingum sláandi – „Það er orðið svo þreytt að segja að hugur manns sé hjá þeim“