fbpx
Þriðjudagur 26.nóvember 2024
Eyjan

Kall leiklistargyðjunnar

Egill Helgason
Miðvikudaginn 1. nóvember 2006 18:38

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leiklistin er heillandi. Þegar ég var unglingur var sagt að mjög spennandi væri að fara í Leiklistarskólann vegna þess að þar færu allir saman í sturtu, karlar og konur. Einnig var sagt að karlkyns nemendur í skólanum stunduðu reglulegar tippamælingar í búningsklefum.

Nú berast fréttir af því að fyrsta árs nemar í Listaháskólanum hafi tekið sig til og pissað á stúlku. Það var í námskeiði sem nefnist Fræði og framkvæmd. Það hefur greinilega ekkert breyst.

Skólinn segir að nemendur verði að fá listrænt svigrúm. Sem er ábyggilega rétt. Þjónustan við listagyðjuna tekur á sig margvíslegar myndir.

— — —

Þórunn Sveinbjarnardóttir skrifar á vef Samfylkingarinnar grein undir yfirskriftinni Takið ykkur á strákar. Hún beinir orðum sínum til okkar karlmanna – sem hóps – við verðum að taka okkur á varðandi nauðganir, segir hún.

Nú skil ég ekki alveg hvað þingkonan er að fara. Hvað á ég sammerkt með þeim mönnum sem nauðga annað en að ég er af sama kyni og þeir? Segjum nú að morðalda gangi yfir Reykjavík, myndi þá einhver hvetja mig til að "taka mig á"

Ég vil hafa skikkanlegt og friðsamlegt samfélag eins og flest fólk, karlar og konur. Ég þoli ekki ofbeldi. Ég beiti konur ekki ofbeldi. Og mér finnst hallærislegt að vera settur í sama flokk og ofbeldismenn, bara af því ég er karl.

— — —

Halda menn í alvörunni að Ekstrabladet sé að skrifa um íslenska kapítalista til að hefna fyrir Nyhedsavisen? Þetta mátti lesa í Viðskiptablaðinu í morgun. Ég hef starfað við fjölmiðla í aldarfjórðung og þykist vita að blaðamenn eru yfirleitt ekki í þessháttar pólitík. Staðreyndin er einfaldlega að þetta er það sem Danir vilja lesa, það er frjór jarðvegur fyrir þessari umfjöllun – og Ekstrablaðið útvegar stöffið.

Hún er algjörlega í stíl blaða af þessari sortinni hvers ær og kýr er að staðfesta ríkjandi fordóma fremur en ganga gegn þeim. Það er líka það sem lesendur vilja.

Kannski er greinarflokkurinn lélegur, kannski er ekkert nýtt í honum, kannski er verið að tengja saman hluti á hæpnum forsendum. En þetta er samt dúndurefni. Halda menn ekki að við Íslendingar hefðum áhuga á að lesa um hóp Grænlendinga sem kæmi hingað með svona bægslagangi – og drýldnum yfirlýsingum um að við kynnum ekkert í bisness?

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Grein 5 um ESB/Evrópu: Það þarf sterka Evrópu til að tryggja öryggi og velferðar barnanna okkar

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Grein 5 um ESB/Evrópu: Það þarf sterka Evrópu til að tryggja öryggi og velferðar barnanna okkar
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Orðið á götunni: Mun taktísk kosning ráða úrslitum um forystusætið?

Orðið á götunni: Mun taktísk kosning ráða úrslitum um forystusætið?
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Atlaga Stefáns Einars að Þórði Snæ hjálpar Samfylkingu – tryggir jafnvel kjör fyrrum ritstjóra Fréttablaðsins

Orðið á götunni: Atlaga Stefáns Einars að Þórði Snæ hjálpar Samfylkingu – tryggir jafnvel kjör fyrrum ritstjóra Fréttablaðsins
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Steinunn Ólína skrifar: Óheiðarleiki er smitsjúkdómur

Steinunn Ólína skrifar: Óheiðarleiki er smitsjúkdómur
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson leiðréttir Össur: Nei, Össur, það er ekki Viðreisn heldur Samfylkingin sem hallar sér til hægri

Þorsteinn Pálsson leiðréttir Össur: Nei, Össur, það er ekki Viðreisn heldur Samfylkingin sem hallar sér til hægri
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Segir fund með Grindvíkingum sláandi – „Það er orðið svo þreytt að segja að hugur manns sé hjá þeim“

Segir fund með Grindvíkingum sláandi – „Það er orðið svo þreytt að segja að hugur manns sé hjá þeim“