fbpx
Þriðjudagur 26.nóvember 2024
Eyjan

Ónefni, stjórnmálaskýringar, leirburður

Egill Helgason
Mánudaginn 13. nóvember 2006 18:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í gamla daga stoppuðu prestar mestu ónefnin. Mannanafnanefnd hefur fengið það hlutverk. Eitt sinn var algjört stigma að vera með skrítið nafn, slíkum börnum var strítt og líf þeirra lagt í rúst, en nú eru svo margir með furðuleg og fáránleg nöfn að þau falla kannski bara í fjöldann. Foreldrar mega velja nöfn á börnin sín fyrir mér – en það þarf samt ekki að halda því fram að þeim sé öllum treystandi til þess.

Mér er eiginlega meira umhugað um þann íslenska sið að kenna sig við föður. Í útlöndum er þetta til sífelldra vandræða. Maður ferðast um með barn sem heitir ekki sama nafni og maður sjálfur. Verðir á landamærum reka upp stór augu. Er þetta stolið barn? Það bætir ekki úr skák á móðirin heitir líka allt öðru nafni.

Það er bannað með lögum á Íslandi að taka upp ný ættarnöfn. Hefur verið svo síðan 1925. Frammámenn þeirra tíma vildu standa vörð um gamla kerfið sem dó út á Norðurlöndunum á miðöldum. Ættarnöfn sóttu mjög á alla 19. öldina, sérstaklega hjá fína fólkinu. Við sem urðum fín miklu síðar – já, kannski bara í gær – megum hins vegar ekki bera ættarnöfn.

Verst er þó þegar fólk fer að kenna sig við bæði föður sinn og móður. Sara Dögg Bjarts- og Ilmardóttir eða eitthvað svoleiðis.

— — —

Tveir mestu þungaviktarmenn í íslenskum stjórnmálaheimi túlka prófkjör helgarinnar. Össuri Skarphéðinssyni tekst að skrifa langan pistil um prófkjör Samfylkingarinnar án þess að nefna svilkonu sína Ingibjörgu Sólrúnu nokkurn tíma á nafn.

Og Þorsteinn Pálsson, fyrrum leiðtogi sjálfstæðismanna á Suðurlandi, skrifar leiðara í Fréttablaðið þar sem honum tekst hið ótrúlega – að nefna ekki Árna Johnsen. Þorsteinn er hins vegar á því að mestu tíðindin felist í góðri kosningu Bjarna Benediktssonar í Kraganum. Ahemm.

Þorsteinn er líklega í afneitun en hvað vakir fyrir Össuri? Er ástandið virkilega svona slæmt í Samfylkingunni? Össur er í skjallbandalagi við Björn Inga Hrafnsson sem skemmtir sér yfir slakri kosningu Sólrúnar, en einn besti vinur hans er Hrafn Jökulsson sem beinlínis dansar af kæti yfir þessu.

— — —

Björn Bjarnason vitnar á heimasíðu sinni í svohljóðandi kvæði eftir Matthías Johannessen. Skrifar eins og þetta eigi að vera voða magnað:

Það er vegið að þeim sem vitja síns tíma með dug
eins og vandræðaskáld sem telur sjálfum sér borgið
en það er víst erfitt að komast á krassandi flug
í kastljósi frétta og venja sig sífellt við orgið
í álitsgjöfum sem hatast við annarra hug
og halda í gislingu þjóð sem ráfar um torgið
þar sem frelsið er iðkað og afskræmt eins og gengur
og enginn veðjar á frelsisgyðjuna lengur.

Nú bið ég þá að rétta upp hönd sem finnst þetta góður kveðskapur. Ekki? Nei, þetta er hnoð og hugsunin flatneskja. Maður þarf ekki að bera mikið skynbragð á bókmenntir til að sjá það.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Oddvitinn búinn að fá nóg af tali um útlendingaandúð Íslendinga – „Jæja góði“

Oddvitinn búinn að fá nóg af tali um útlendingaandúð Íslendinga – „Jæja góði“
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Grein 5 um ESB/Evrópu: Það þarf sterka Evrópu til að tryggja öryggi og velferðar barnanna okkar

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Grein 5 um ESB/Evrópu: Það þarf sterka Evrópu til að tryggja öryggi og velferðar barnanna okkar
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Sauð rækilega upp úr á hitafundi í Ölfusi – „Þú ert bara galin manneskja og þú skalt bara haga þér“

Sauð rækilega upp úr á hitafundi í Ölfusi – „Þú ert bara galin manneskja og þú skalt bara haga þér“
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Einmanaleiki drykkjunnar

Óttar Guðmundsson skrifar: Einmanaleiki drykkjunnar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Stefna á frekari sókn á erlendum mörkuðum

Stefna á frekari sókn á erlendum mörkuðum
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Atlaga Stefáns Einars að Þórði Snæ hjálpar Samfylkingu – tryggir jafnvel kjör fyrrum ritstjóra Fréttablaðsins

Orðið á götunni: Atlaga Stefáns Einars að Þórði Snæ hjálpar Samfylkingu – tryggir jafnvel kjör fyrrum ritstjóra Fréttablaðsins