Guðmundur Þóroddsson skilur ekki hvað er átt við þegar talað er um trúnaðarbrest milli borgarstjórnar og stjórnenda hjá REI. Hann segir að að listi með nöfnum þeirra sem bauðst að kaupa í sameinuðu félagi hafi verið lagður fyrir fund eigenda og stjórnar OR upp úr hádegi á miðvikudag í síðustu viku. Þar hafi komið fram hve stóran hlut hver mátti kaupa og á hvaða gengi.
Í gær sagði Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson í fréttum að sér hefði verið ókunnugt um kaupréttarsamingana umdeildu.
Þetta passar ekki alveg – eða hvað?
Nú er búið að fórna Hauki Leóssyni. Er hægt að spá því að Guðmundur verði næstur?