Það getur varla verið góður starfsandi innan borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins – sama þótt Vlhjálmur Þ. og Gísi Marteinn komi fram arm í arm.
Þeim sem gengu harðast fram gegn gamla góða Villa hefur á endanum brostið kjarkur til að taka af honum völdin. Geir Haarde virðist hafa stigið inn í atburðarásina og stoppað þá. Nú segist Villi ekkert hafa vitað.
Það er merkileg niðurstaða úr þessu máli að huldumanninum Hauki Leóssyni skuli hafa verið fórnað. Á maður að skilja það þannig að hann sé skúrkurinn?
Eða öllu heldur the fall guy.
Svo er líka merkilegt að sjá hvernig að sumu leyti ágæt áform um orkuútrás hafa verið skemmd með þessu klúðri.
Ber þá enginn ábyrgð – nema Haukur?