Ungir jafnaðarmenn álykta á þingi sínu að ekki skuli reist fleiri álver. Spurning er hversu harðir þeir verða í andstöðu sinni?
Fátt virðist geta komið í veg fyrir að rísi álver í Helguvík. Málið er einfaldlega komið of langt til að stöðva það.
Húsvíkingar vilja líka ólmir fá álver. Það yrði knúið áfram með jarðhita. Umhverfisrask verður í lágmarki. Það er erfitt að skipa íbúum þessa svæðis að byggja ekki svona verksmiðju.
Þegar fiskurinn er farinn er ekki lengi hægt að halda uppi byggðarlögum með „mótvægisaðgerðum“.
Mun þetta valda valda vandræðum í stjórnarsamstarfinu? Það er sagt að Samfylkingin viti að hún þarf að fallast á að minnsta kosti eitt álver en að stóriðjuglaðir sjálfstæðismenn skilji að þeir nái ekki fram ítrustu kröfum sínum sem eru þrjú stykki.