Opinbert fyrirtæki stofnar einkafyrirtæki on the side.
Forstjóri hins opinbera fyrirtækis er gerður að forstjóra hliðarfyrirtækisins – sem er þó að stórum hluta í eigu hins opinbera fyrirtækis.
Hann fær að leika sér með peninga opinbera fyrirtækisins eins og þeir séu hans eigin.
Þess að auki fær hann væntanlega miklu hærri laun en áður plús stóran kaupréttarsamning í hliðarfyrirtækinu sem kann að reynast mjög verðmætur.
Nokkrir vildarvinir hans og stjórnmálamannanna sem stóðu að þessum tilfæringum fá líka kaupréttarsamninga.
Hinir eigendur hliðarfyrirtækisins eru nokkrir af gráðugustu kapítalistum landsins.
Spilling? Allavega nokkuð langt úti á gráa svæðinu.