Aðalhlutverk forseta Alþingis virðist vera að vera einhvers konar bygginga- eða viðhaldsstjórn fyrir alþingisreitinn og byggingar á honum.
En um leið er forsetinn ráðherraígildi, hefur opinberan bíl með bílstjóra og öll þau fríðindi sem fylgja ráðherradómi. Hængurinn er bara sá að forseti Alþingis hefur lítið sem ekkert að gera. Og því er hann – sama hvort það er Halldór Blöndal, Sólveig P. eða Sturla Bö – sífellt að vinna í því að bæta og breyta aðstöðu þingsins,
Þar virðist aldrei vanta pening – sífellt má gera upp eða byggja nýtt.
Nú er hugmyndin að byggja skrifstofuhúsnæði milli þinghússins og Tjarnarinnar. Þá verður öll starfsemi þingsins komin í hús sem eru í eigu þess. Sumt í þessum tillögum er reyndar ágætt – eins og að loks eigi að gera upp Skjaldbreiðarhúsið. Fyrir fáum árum hélt ég að myndi enda með því að það yrði rifið.
Annars er það makalaust með skipulagið í miðborginni. Nú hefur Alþingi tekið sig til og skipulagt stóran reit í Kvosinni. Upp með Laugavegi og Hverfisgötu eru það auðmenn sem sjá um skipulagið. Þetta er dæmi um horror vacui – borgaryfirvöld hafa í áratugi svikist um að gera nokkurn skapaðan hlut í miðbænum, þaðan hefur ekki komið neitt frumkvæði.
Þetta hefur skilið eftir tómarúm sem aðrir eru nú að keppast við að fylla.