Sérstakur gestur í Kiljunni annað kvöld er Einar Már Jónsson, háskólakennari við Sorbonne í París. Einar sendi í sumar frá sér bókina Bréf til Maríu. Hún vakti mikla athygli þrátt fyrir að hún væri ekkert auglýst – seldist vel og hefur verið mjög í umræðunni. Einar Már hefur ekki áður verið í sjónvarpsviðtali.
Bréf til Maríu er fyrst og fremst ádeilurit þar sem Einar Már gerir upp við hugmyndastrauma á síðari hluta tuttugustu aldar – marxismann, strúktúralismann og ekki síst frjálshyggjuna sem hann telur að tröllríði öllu nú um stundir. Um leið er bókin skemmtilesning, skrifuð af andagift, þar sem höfundur fer um víðan völl og beitir sínum mikla lærdómi.
Af öðru efni þáttarins má nefna umfjöllun um skáldið og utangarðsmanninn Jónas Svafár. Er það satt að hann hafi sofið í ár? Var hann alvöru skáld? Hafði hann áhrif?
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir segir frá kynnum sínum af Dostojevskí. Bragi Kristjónsson verður á sínum stað, sem og Páll Baldvin og Kolbrún Bergþórsdóttir.