Kári er mikill bítlaaðdáandi. Ég hef hann reyndar grunaðan um að ætla að verða gítarleikari.
Ég hef ekki treyst mér til að segja honum frá fráfalli Johns og Georges.
En þegar við vorum að horfa á fréttirnar áðan sagði hann:
„Það væri allt í lagi að hitta Ringo.“