Álit manns á George Bush versnar enn ef það er hægt – heimska, vanhæfni, fáfræði, spilling, græðgi, sérgæska og hroki eru nokkur orð sem koma upp í hugann þegar litið er yfir verk hans og valdaferil. Menn eru í alvöru farnir að velta því fyrir sér hvort hann sér versti forseti í sögu Bandaríkjanna.
Hjá Davíð Loga má lesa um hvernig þeir stóðu að því að fara í stríðið – fékk íslenska ríkisstjórnin svona trakteringar eða töldu Halldór og Davíð að mætti búast við einhverju svona? (Herinn fór jú hvort sem var.)
Svo er hér á Freedom Fries vitnað í athyglisverða grein eftir Paul Krugman þar sem er spurt hvort valdatíð Bush sé tilraun í því hvað gerist ef ríkisstjórnir taka kerfisbundið vitlausar ákvarðanir.