Mig langar að benda á þessa umræðu um „hátæknisjúkrahúsið“ hjá ágætum lækni og gömlum vini mínum úr Ásvallagötunni – eða réttar sagt stóra bróður vinar míns – Júlíusi Valssyni.
Júlíus mælir af spaklegu viti og það gerir líka Dögg Pálsdóttir varaþingmaður sem segir:
„Hátæknisjúkrahús er auðvitað hallærisheiti. Er með því gefið í skyn að starfsemin á Landspítalanum nú sé ekki eins hátæknivædd og mögulegt er? Auðvitað er hún það. Svo finnst mér að menn eigi að hafa kjark og þor til að endurskoða allar ákvarðanir um byggingu þessa nýja sjúkrahúss og staðsetningu þess. Það þarf vissulega að bæta húsnæðisvanda Landspítala en ég held að þessi nýbygging sé ekki rétta leiðin.“
Væri nú ráð að fleiri stjórnmálamenn hefðu skoðun á þessu risastóra máli, en létu ekki bara kerfið ráða þessu sjálft.