Voru það ekki þessir hérna sem héldu ráðstefnu þar sem erlendir sérfræðingar ræddu upptöku evru án þess að Ísland gengi í Evrópusambandið?
Og sem Davíð Oddsson segir að séu sprenghlægilegir?
Hér má sjá stjórn Rannsóknarstofnunar um efnahagsmál, hér er rannsóknarráðið og hér er fulltrúaráðið.
Þarna má sjá nöfn eins og Jónas Haralz, Birgi Þór Runólfsson, Orra Hauksson, Brynjólf Bjarnason, Ásdísi Höllu Bragadóttur, Ingimund Sigurpálsson, Rannveigu Rist, Hannes Hólmstein Gissurarson og Þór Whitehead.
Vandinn er kannski sá að þessi umræða er komin langt inn í raðir gamalla stuðningsmanna Davíðs – kannski óþægilega langt?