Makalaust hvað maður er að heyra mikið um svindl og slúbbertahátt í byggingariðnaði. Hér eru ný dæmi úr útvarpsfréttum. Að auki hef ég nýskeð heyrt um svipuð mál á Völlunum í Hafnarfirði og frá Skúlagötunni í Reykjavík. Í báðum tilvikum eru málaferli í uppsiglingu.
Þetta virðist vera orðið landlægt. Kannski er gott að ég var að fjárfesta í húsi sem er svo gamalt að allir eru löngu dánir sem komu að smíði þess.