Ég segi hér að neðan að það sé mikill missir að Þóru Kristínu. Ef ég réði fjölmiðli væri hún meðal þeirra fyrstu sem ég vildi fá í vinnu.
En ég held að það sé ekki rétt að hún sé rekin út af pólitík eða vegna þess að hún er kona.
Ég hygg líka að enginn verði látinn gjalda fyrir það á fréttastofunni að vera aldraður, af lágstétt eða dökkur á hörund.