Það var að verða blátt af berjum á Þingvöllum í gærkvöldi.
Sumir reyndu að tína í poka sem var meðferðis.
Aðrir tíndu bara upp í sig.
Þegar maður kemur á Þingvelli á svona sumarkvöldi byrjar maður ósjálfrátt að fara með Jónas. Hann er partur af landinu.