Hugmynd mín um að taka saman lista um barnabækur sem þarf að banna hefur fengið mjög góðar viðtökur.
Þór Jónsson sendi mér póst og nefndi nokkra titla:
Tíu litlir negrastrákar, Litli Svarti sambó, Lína langsokkur í Suðurhöfum, Óliver Twist.
Hann beinti einnig á að í Quatar lituðu þeir einfaldlega yfir ósæmileg atriði i barnabókum eins og til dæmis grísinn í bókunum um Bangsímon. Eða hvar er gríslingur á þessari mynd? Þeim finnst hann sjálfsagt frekar ógeðslegur og það ber að virða.
Hannes Kristjánsson skrifaði alla leið frá Nýja-Sjálandi og nefndi líka Línu langsokk í Suðurhöfum. Þar er pabbi Línu kallaður negrakóngur. Það hefur valdið miklum áhyggjum víða þar sem bækurnar eru gefnar út.
Dr. Gunni benti mér á bloggfærslu sem hann ritaði fyrir ári síðan. Ég stenst ekki mátið að birta hana í heild.
(Hvernig fór ég að því að gleyma Láka?)
06.07.06
Lata stelpan er ein af þessum barnabókum sem ég man eftir úr æsku. Tékknesk að uppruna, flottar myndir og einfaldur söguþráður: Stelpa er löt og leiðinleg, kötturinn hennar og húsgögnin gera uppreisn og neyða stelpuna til að taka til og fara í bað. Mér fannst þetta bráðskemmtileg bók og keypti það alveg að það væri betra að vera hreinn og með hreint í kringum sig heldur en að liggja önugur í drullunni. En nei, hvað var ég að spá? Auðvitað var þetta ekki svona einfalt. Auðvitað voru vondar karlrembur með bókinni að menga hugi smábarna með STAÐALÍMYNDUM UM STÖÐU KYNJANNA. „Kötturinn hennar neyðir hana í meikóver og eftir það breytist hún í ofurhúsmóður,“ segja nokkrar bráðskarpar konur sem hafa nú stofnað Lötu stelpuna, vef um kynjajafnrétti. Ég biðst afsökunar á að hafa haft gaman af þessari andlegu nauðgun á öllum kvenmönnum veraldarinnar og mun ekki tala oftar við foreldra mína fyrir að hafa troðið þessum viðbjóði upp á mig. Ég ætla auðvitað ekki að falla í sömu gryfju og mun hafa bókabrennu á bókum sonar míns. Þær bækur sem ég brenni eru m.a.:
Birnirnir þrír – Staðalímynd. Afhverju eldaði bangsapabbi ekki grautinn?
Láki – Afhverju situr pabbinn, reykir pípu og les blað á meðan mamman býr til rauðgraut? Hrópleg niðurlæging á öllu kvenfólki.
Stúfur – Enn á ný er það kona sem eldar graut. Geta karlar ekki eldað graut í þessum bókum? Viðurstyggilegt.
Stubbur – „Mamma þvoði og þvoði“ – Er þessum andstyggilegu karlrembum hjá bókaútgáfunni Björk alvara? Ég legg til að farið verði í mótmælasvelti við höfuðstöðvarnar þar til þessum viðbjóðslegu árásum á barnshugina verður hætt.
Bubbi byggir – afhverju byggir Bubba ekki frekar?
Hr. Æðislegur – Hvar er Frú Æðisleg?
Og svo það viðurstyggilegasta af öllu viðurstyggilegu:
Kata. Kata kanína, ógeðsleg staðlímynd af hinni undirokuðu húsmóður sem þrælar sér út fyrir krakka og ógeðslega karlkanínu.
Öllu þessu ógeði mun ég kveikja í í garðinum. Sonurinn verður neyddur til að horfa á og ég mun öskra vel valda kafla upp úr Píkutorfunni á meðan logarnir eyðileggja viðbjóðinn.